Endurmat á eldri störfum
Forsendur endurmats á starfi
Ósk um endurmat er oftast vegna breytinga á starfi, þ.e. helstu verkefni eða skyldur starfs hafa breyst. Til þess að óska eftir endurmati í starfsmati þarf vinnuveitandi og/eða starfsmaður að fylla út endurmatsbeiðni sem er að finna hér fyrir neðan. Hægt er að leita aðstoðar fulltrúa stéttarfélags, yfirmanns og starfsmatsteyma í héraði við að útbúa beiðni. Fyrir beiðni um endurmat skulu færð skýr skrifleg rök. Þar skal koma fram hvaða breytingar hafa orðið á starfinu frá því að starfið var síðast metið eða hvaða starfskröfur eru taldar hafa verið vanmetnar í fyrra mati.
Til að beiðni teljist gild þarf að fylgja henni eftirfarandi gögn;
- Útfyllt endurmatsbeiðni – sem innheldur rökstuðning á þeim breytingum sem hafa orðið á starfinu og á hvaða þáttum
- Upprunaleg starfslýsing (sem fyrra mat byggði á)
- Ný starfslýsing, dagsett og undirrituð af yfirmanni
- Útfylltur spurningarlisti (fylla þarf út allan spurningalistann – þó svo einungis sé óskað eftir breytingum á einum þætti eða fleirum)
Öll þessi gögn má nálgast hér neðar á síðunni. Athugið að viðbót við endurmat þarf eingöngu ef endurmeta á fleiri en þrjá þætti.
Ef sótt er um endurmat getur það leitt til þess að matið fyrir starfið verði endurskoðað í heild sinni. Slík endurskoðun getur leitt til breytinga á mati á öðrum þáttum sem ekki er gerð athugasemd við. Allar endurmatsbeiðnir eru skoðaðar í samhengi við mat á öðrum störfum. Beiðni með ófullnægjandi rökstuðningi og gögnum verður vísað frá og hlutaðeigandi aðilum leiðbeint um ágalla á beiðni.

Endurmatsbeiðnaferlið
- Þegar öll gögn eru útfyllt skal senda þau til starfsmatsráðgjafa á netfangið starfsmat@starfsmat.is
- Þegar beiðni um endurmat berst upplýsa starfsmatsráðgjafar viðkomandi stéttafélag um beiðnina.
- Þegar tillaga starfsmatsráðgjafa liggur fyrir er hún lögð fyrir starfsmatsnefnd / framkvæmdanefnd starfsmats til úrvinnslu og samþykktar.
- Niðurstaða nefndar er svo send stéttarfélagi og mannauðsstjóra sviðs / sveitarfélags sem upplýsa starfsmann/starfsmenn og viðkomandi aðila um niðurstöðu.
Endurmat getur ýmist leitt til hækkunar, lækkunar eða óbreyttrar niðurstöðu. Hækkun á mati gildir frá þeim tíma er sótt var um endurmat og viðeigandi gögnum skilað inn til starfsmatsráðgjafa. Ef endurmat leiðir til lækkunar á mati hefur það ekki í för með sér lækkun þeirra sem nú þegar eru í starfinu en nýir starfsmenn fá greitt samkvæmt nýrri matsniðurstöðu.
Gögn fyrir endurmat